fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þessa fyrirspurn. Ég ætla ekki að segja að hún hafi verið óvænt en varðandi það hvaða augum dómsmálaráðherra og dómsmálaráðuneytið lítur þetta viðfangsefni sem þyrlukosturinn er þá er kannski fyrst að nefna, eins og þingmaðurinn nefndi, að síðastliðið vor gerði ég samning til sjö ára sem tryggði það að hér á landi séu þrjár þyrlur. Ég er mjög vel meðvituð um að það er áhugi fyrir því, þvert á flokka ætla ég að leyfa mér að segja, að við búum við betri þyrlukost. Ég sé málið þannig að núna þegar Ísland hefur skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál, bara svo ég endurtaki það sem ég sagði í ræðunni, hljóti það að verða niðurstaðan þegar við erum að horfa til þess hvaða innviði við erum að efla. Við erum ekki með sjálfstæðan her og við vitum hvað slíkar fjárfestingar kosta þannig að annars vegar erum við með minni fjárfestingu hvað það varðar sem gerir líka að verkum að fjárfesting í hinum borgaralegu innviðum, almannavörnum, Gæslunni, löggæslunni, hlýtur að fara ansi ofarlega á blað. Fyrir þessu mun ég beita mér. Þyrlukosturinn finnst mér hiklaust vera þar undir.
Ég myndi líka vilja nefna húsakost viðbragðsaðila. Ég verð að segja eins og er að mér finnst það til skammar fyrir Ísland að staða húsakosts viðbragðsaðila á Íslandi sé sú sem hún er. En ég bind vonir við að við getum hér á þingi sameinast um það hvar brýnustu verkefnin liggja. Þyrla, hiklaust já. Þar hefur líka verið talað um, í samhengi við öryggi og varnir, aukna aðkomu heilbrigðisyfirvalda að þyrlunum. Ég vona að þingmaðurinn heyri það sem ég er að segja í því samhengi að ég er sannarlega opin fyrir samtali um að hér getum við og eigum að gera betur.