fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferðina hér áðan og þetta samtal sem við getum átt núna í tengslum við fjárlögin. Fjölgun lögreglumanna er ein af mörgum jákvæðum fréttum í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Við sjáum að uppbygging samfélagslöggæslu hefur sýnt sig að virki vel og ljóst að frumkvæðisvinna lögreglunnar tengd afbrotavörnum hefur nú þegar og mun skila miklum árangri, sérstaklega til að styðja unga fólkið okkar. Því vil ég hvetja ráðherra áfram til dáða í eflingu á löggæslunni. Á sama tíma þurfum við að horfa á heildarferli bæði þolenda og gerenda í afbrotum og gott að sjá að málefni fanga eru komin á dagskrá og ekki síst þeirra sem glíma við fjölþættan vanda og hefðbundin refsivist og endurhæfing mun kannski ekki gagnast.
Mig langar að beina nokkrum spurningum til ráðherra. Ég heyrði það í máli hennar að saksókn og dómstólar eru undanþegnir hagræðingarkröfu en ekki horft til neinar aukinnar fjárveitingar þar. Þar getur skapast ákveðin skekkja á milli lögreglurannsókna og síðan saksóknar og dómstóla, það þarf að horfa á allt ferlið. Það sem brennur kannski mest á mér núna er það sem ég hef bent á í þessum ræðustól — og einnig hefur t.d. hv. þm. Grímur Grímsson verið á svipuðum slóðum og við erum kannski ekkert á ósvipuðum slóðum og hv. þingmaður var hér á undan okkur — að við veltum fyrir okkur mikilvægi þessara borgaralegu stofnana þegar kemur að varnar- og öryggismálum og þeim fjárveitingum sem eru ætlaðar í þann málaflokk núna í þessum fjárlögum í gegnum utanríkisráðuneytið, hvernig samspili þessara þátta verður hagað hjá herlausri þjóð. Við sjáum núna bara seinast í þeim atburðum sem urðu í Póllandi þar sem það er alveg ljóst að lögreglan t.d. og almannavarnir gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í þeim viðbrögðum sem urðu í landinu. Herinn var auðvitað í þessu viðbragði að berjast við og reyna að skjóta þessa dróna niður en rannsókn lögreglu á því hvað raunverulega var að gerast er stóra málið í Póllandi núna. Hvaðan komu þessi drónar, hvað var í þeim, hvert voru þeir að fara? Þetta er það sem við þurfum að horfa á hjá okkur. (Forseti hringir.) Við erum ekki með her en við þurfum að efla getu lögreglu, Landhelgisgæslu og almannavarna til að bregðast við svona ógnum.