fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör sín. Það er ánægjulegt að heyra að það er nokkur samhljómur með okkur lögfræðingunum hér í þinginu. Ég fagna því auðvitað ef ráðherra hyggst beita sér fyrir því að lækka þennan kostnað við byggingu fangelsisins en engu að síður vil ég ítreka fyrri spurningu mína um hver sé núverandi áætlun hvað kostnaðinn varðar.
Ég vil þó einnig spyrja ráðherrann um annað mál á þingmálaskránni, sameiningu sýslumannsembætta. Ég velti því fyrir mér hvort eitt af markmiðum sameiningarinnar hljóti ekki að vera aukin skilvirkni og hagkvæmni í rekstri og hvort þess ætti ekki að sjá einhvern stað í frumvarpi til fjárlaga.