fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir spurningarnar. Þetta er mikilvæg umræða. Fyrst vil ég segja varðandi atvinnu- og dvalarleyfi að það er augljóst mál að íslenskt atvinnulíf hefur notið góðs af því að fólk hefur komið að utan til þess að stunda vinnu á Íslandi. Við sjáum þetta í heilbrigðiskerfinu okkar, í ýmissi þjónustu sem við skilgreinum sem grunnþjónustu, hjúkrunarfræðinga sem koma að utan. Auðvitað viljum við erlenda sérfræðinga hingað til lands en minn punktur er, og þess vegna er ég í þessari vinnu: Ef við erum að skoða útlendingamálin þá skoðum við þau heildstætt og við skoðum alla anga.
Hv. þingmaður vísaði í grein sem ég skrifaði í sumar og vakti einmitt athygli á því að það sé eitthvað að gerast með námsmannaleyfin. Vöxturinn þar er sérstakur og þar eru tölur í gangi sem kalla á skoðun. Sú skoðun stendur yfir. Það er mér mikið keppikefli að byggja þær tillögur sem ég mun síðan leggja fram á greiningum og gögnum. En ég myndi segja að það sé full ástæða til að vera gagnrýninn og krítískur á það sem er að gerast með námsmannaleyfi á Íslandi.