fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar yfirferð. Verandi fulltrúi í hv. velferðarnefnd Alþingis hef ég verið að glöggva mig á hlutum. Það er ýmislegt jákvætt og kannski annað sem vekur upp spurningar. Við erum öll sammála um að við viljum og þurfum að nýta fjármunina sem allra best og þá er þetta spurning um forgangsröðun. Erum við að taka út eða draga úr framlögum til verkefna sem nýtast fjölda fólks og eru ekki í boði hvar sem er eða erum við að draga úr stjórnsýslu í kringum hlutina? Erum við að forgangsraða eins og við teljum að fólkinu og heildinni sé fyrir bestu? Ég hjó eftir því að ein af breytingum á fjárheimildum til málaflokksins er sú að það á að lækka um nærri hálfan milljarð króna framlög til SÁÁ, Samhjálpar, Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Parkinsonsamtakanna, Krýsuvíkursamtakanna og Ljóssins. Að það eigi að fella niður það sem komið hafði inn sem tímabundin framlög. Ég held að ég þurfi ekki að fara yfir það hérna fyrir hæstv. ráðherra hversu gríðarlega vel t.d. Ljósið hefur reynst, ég tek það sem dæmi, og það er viðurkennd endurhæfingarmiðstöð. Mér skilst að það séu um 600 manns á mánuði sem njóti þar aðstoðar og endurhæfingar, 600 manns, og að nú eigi að lækka framlög til þessarar starfsemi um tæpar 200 millj. kr. Mig langar að fá viðhorf ráðherrans til þessa því að ég geri ráð fyrir því og veit að hún þekkir mikilvægi þessarar starfsemi. Hvort það sé þá hugsað fyrir því að þessi starfsemi megi áfram blómstra með einhverjum öðrum hætti sem okkur yfirsést svona við fyrstu yfirsýn á þessu frumvarpi.