157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Aftur þakka ég þingmanninum og fullvissa hann um að ég mun hitta Ljósið og reyna að miðla málum. Það sama gildir um ýmis félagasamtök þar sem við erum með samskot fyrir rekstri, eins og Bergið, hjálparsíma Rauða krossins o.s.frv. Þessum málum þarf að koma í betra stand.

Varðandi hjúkrunarheimilin er uppbyggingin á forræði hæstv. félagsmálaráðherra. Við fáum þau inn í rekstur jafn harðan og þau koma. Þar er gert ráð fyrir 2 milljörðum á næsta ári. Það koma 106 ný rými. Aukinheldur er verið að bæta 200 milljónum vegna aukinnar hjúkrunarþyngdar og þar að auki erum við að bæta heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni sem reka hjúkrunarheimili 800 milljónir á næsta ári til samræmis við það sem fyrirtæki í einkarekstri hafa fengið í gegnum samninga við Sjúkratryggingar. Þannig að það er svo sannarlega mjög ofarlega á blaði hjá þessari ríkisstjórn að efla þjónustu við aldraða.