157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar að spyrja út í það atriði er varðar áform um að ná niður lyfjakostnaði. Það hefur verið, að mér heyrist, töluverð umræða um það í velferðarnefnd undanfarið að Ísland hafi að einhverju marki skákað sér út af borðinu hvað aðgengi að ýmsum lyfjum og þess háttar varðar, bara á grundvelli verðstefnu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í það með ítarlegri hætti hvernig ráðherrann sér fyrir sér að þetta gangi fyrir sig, hvaða áhrif þetta hafi á lyfjaframboð og lyfjaöryggi og hvaða upphæðir hæstv. ráðherra sér fyrir sér að raunhæft sé að ná fram í hagræðingu þar, með þá vitund um möguleg hliðaráhrif af slíkum aðgerðum og ákvörðunum. Þarna eru stórar tölur undir þannig að það skiptir máli fyrir okkur hér í þinginu og þá sem á horfa að átta okkur á hvert hið eiginlega markmið er svo að þetta sé ekki bara í orði heldur líka á borði.