fjárlög 2026.
Frú forseti. Aftur þakka ég þingmanninum. Lyfjaöryggi snýst auðvitað um svo margt og við erum örmarkaður þannig að við erum gríðarlega mikið að beina sjónum að samstarfi við Evrópuríki í innkaupum og erum í beinlínis í samtali þar um að fá að vera í samfloti við aðgengi að ýmsum lyfjum.
Varðandi hlutverk Lyfjastofnunar þá er það auðvitað svo víðfeðmt, það er skráning, lyfjaverð og greiðsluþátttaka o.s.frv. þannig að þó við tækjum upp markaðsleyfi frá öðru landi, eins og ég heyrði þingmanninn ræða í gær, þá eru reglur um að það þurfi að vera leiðbeiningar á íslensku og auðvitað mun gervigreindin hjálpa okkur með það þegar fram líða stundir. En Lyfjastofnun hefur jú margar aðrar skyldur, leyfisveitingar eins og lyfsöluleyfi og rekstrarleyfi og leyfi til lyfjaframleiðslu, síðan eftirlit með dreifingu og smásölu, innflutningi, framleiðslu og mörgu fleiru. En auðvitað eigum við alltaf að vera að skoða allar stofnanir og sjá hvort hægt er að hagræða.