fjárlög 2026.
Frú forseti. Þetta voru margar spurningar sem ég gæti svarað í löngu máli þannig að ég verð bara að stikla á stóru.
Mönnunarmálin. Það er reyndar talað um mönnunarmál í texta fjármálaáætlunar og það er auðvitað mjög ofarlega á blaði og mjög margt hægt að gera þar. Það er auðvitað verið að mennta fleiri heimilislækna sem eru allt of fáir hér miðað við önnur lönd. Það eru alls konar löðunarverkefni í gangi og í kjördæmi þingmannsins hafa sveitarstjórnir og heilbrigðisstofnun tekið höndum saman um að laða heilbrigðisstarfsfólk til starfa. Síðan er auðvitað fjarheilbrigðisþjónusta, tilfærsla starfa milli stétta, sjúkraflutningar, samgöngumál og margt fleira sem þarna heyrir undir og er í miklum forgangi hjá okkur.
Varðandi sérhæfða sjúkrahúsþjónustu og fagráð þá er það þannig að þó hagræðingin sé sett þarna undir gildir hún um allt kerfið. Þetta er forgangsröðun og þetta snýst um að hætta þjónustu sem er kannski ekki mikið virði í fyrir heilsu, það er mjög margt þannig, og líka að forgangsraða í því hvaða nýjungar við tökum upp o.s.frv. Það verður erfitt að útfæra þetta á þessum stutta tíma því að þetta er auðvitað sýnd veiði en ekki gefin og ég hef verið mjög skýr með það. En þetta er mjög nauðsynlegt og mjög vel skipað fagráð. Það er búið að birta frétt um það sem ég bara ráðlegg þingmanninum að lesa.
Varðandi það að styrkja Sjúkratryggingar þá er ég algerlega sammála og það kom jú út skýrsla í sumar þar sem Ríkisendurskoðun gerði úttekt á Sjúkratryggingum. Þetta vissi ég áður en skýrslan kom út þannig að þá hafði ég þegar veitt 60 milljónir til styrkingar Sjúkratrygginga því þar þarf að styrkja þarfagreiningar, samningagerð og eftirfylgni. Síðan verður kostnaðargreint hvað þarf frekar til.