fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil í seinni spurningu minni til hæstv. ráðherra koma inn á lyfjalögin sem döguðu uppi í velferðarnefnd á síðasta þingi og eru ekki á þingmálaskrá núna. Er það ekki bara innleiðingarmál, hlutinn sem er á þingmálaskrá núna?
Frú forseti. Ég verð að endurskoða þessa spurningu mína. Mér hefur yfirsést þessi grein í þingmálaskránni og biðst ég forláts á því. En þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í það með hvaða hætti ráðherrann sér fyrir sér — nú er búið að ræða lyfjamálin stuttlega en eins og við þekkjum þá er heilbrigðisþjónustan málaflokkur sem má segja að geti tekið endalaust við fjárhagslega. Hvaða verkefni sér hæstv. ráðherra fyrir sér að innleiða, ef einhver, er snúa að því verkefni sem ætti að vera viðvarandi hjá okkur í stjórnmálunum, að fá meira fyrir minna eða jafn mikið? Hvað er það til að mynda innan Landspítala sem ráðuneytið er að hlutast til um? Eru einhver hagræðingarverkefni eða verkefni sem eru til þess ætluð að ná fram fjárhagslegri hagræðingu þannig að innan einhvers hluta þess kerfis náist fram það markmið að skattgreiðendur, ef svo má segja, fái meira fyrir minna eða jafn mikið fyrir minna?