157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:47]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir yfirferðina á sínum málaflokkum. Mig langar að spyrja um nokkur atriði: Nú er það þannig, svo að ég tali nú bara frá eigin skinni, að ég hefði kosið að það hefði heldur verið bætt í þennan málaflokk en hitt. Staðan er einfaldlega þannig að ríkisstjórnin hefur lofað að forgangsraða í þágu verðmætasköpunar og orkuframleiðsla er auðvitað þar á blaði og á í rauninni að vera ofarlega á blaði. Ég er örlítið svekktur með að samdráttur skuli vera boðaður og langar þá í framhaldi af því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé hættur að leita að heitu vatni og hvort hagnýting smávirkjana sé kannski ekki alveg í efstu skúffunni hjá ráðherranum.

Mig langar einnig til að forvitnast um rammaáætlun. Nú hef ég ekki séð og ekki heyrt af því hvort búið sé að tilnefna í faghópa í rammaáætlun 6. Það hefur alla vega ekki borið á því að farið hafi verið í einhverjar rannsóknir í sumar og það er kannski tími sem við hefðum betur nýtt. En ég velti fyrir mér, í ljósi þess að ráðherrann hefur nú haft ákveðna virkjunarmöguleika í samráðsgátt, hvort það séu skilaboð til okkar í umhverfis- og samgöngunefnd um að ganga hraðar til verka en við gerðum síðast. Í framkomnu nefndaráliti meiri hlutans var t.d. ekki ákveðið að nýta Skagafjarðarveitur eða Kjalöldu svo að dæmi sé tekið. Ég vil kannski fá að heyra afstöðu ráðherrans til þess og hvernig breytingin á rammaáætlun gengur.