157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:50]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg og óska honum til hamingju með stöðu þingflokksformanns. Hv. þingmaður nefnir hér fyrst að hann hefði kosið að það yrði bætt í málaflokk orkumála og talar um það í því samhengi að við stefnum að aukinni orkuframleiðslu í landinu. Það væri auðvitað meiri háttar stefnubreyting ef stjórnvöld færu t.d. að niðurgreiða orkuframleiðsluna sjálfa með einhverjum hætti. Við bætum ekki endilega í orkuframleiðsluna með auknum ríkisframlögum. Við gerum það fyrst og fremst með því að liðka fyrir framkvæmdum og einfalda regluverk og hv. þingmaður nefndi einmitt rammaáætlun hér áðan. Það er alveg rétt að ég óska þess að það verði gott samstarf í umhverfis- og samgöngunefnd um að klára tvær rammaáætlunartillögur fyrir áramót.

Ég lagði inn í samráðsgáttina tillögu um að þeir kostir sem stefnt var að að færu í verndarflokk rammaáætlunar verði í biðflokki og haldist þar, a.m.k. meðan ríkisstjórnin er að móta sér áætlun til næstu ára um raforkuöflun og á meðan við erum í raun að kortleggja orkujöfnuð í landinu með hliðsjón af væntu framboði. Afstaða mín hvað þetta varðar, þessa rammaáætlunarpakka, hefur þannig birst í samráðsgátt. Ég hlakka til að koma með þessa pakka inn í þingið. Jarðhitaátak og leit — hún er farin af stað. Það var náttúrlega farið í góða vinnu á síðasta kjörtímabili en við gáfum í og í staðinn fyrir að vera með 450 millj. kr. almennt átak í leit og nýtingu jarðhita fórum við í almennt átak upp á 1 milljarð og við erum að fara að kynna úthlutun þeirra styrkja í næstu viku. (Forseti hringir.) Þar koma líka fram mjög spennandi tölur um áætlaðan ávinning og orkusparnað af þessum aðgerðum sem Umhverfis- og orkustofnun hefur verið að fara yfir þannig að við höldum áfram af fullum þunga í hitaveituvæðingu og það er gott að eiga bandamann í hv. þingmanni.