157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:54]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi mikilvægi jarðhitaleitar. Ég hef falið Umhverfis- og orkustofnun að leggja mat á væntan ávinning af átakinu okkar Jarðhiti jafnar leikinn og þar koma fram tölur sem í rauninni jafngilda sem nemur hátt í allri orkuframleiðslu Orkubús Vestfjarða. Við erum í rauninni ef vel gengur — og þetta eru svona frekar varfærnislega áætlaðar tölur hjá Umhverfis- og orkustofnun — með þessu að losa um og í raun spara okkur raforkunotkun sem nemur nánast framleiðslu heillar meðalstórrar vatnsaflsvirkjunar þannig að þetta er gríðarleg spennandi.

Varðandi rammaáætlun hefur ný verkefnisstjórn sem ég skipaði í byrjun sumars notað sumarið vel. Það er verið að tilnefna og skipa í faghópa og ég geri ráð fyrir að þau nöfn verði kynnt á næstu dögum eða vikum.

Hvað varðar heilbrigðiseftirlit þá vil ég taka fram að það er kannski pínulítið villandi að tala eins og það eigi að leggja niður heilbrigðiseftirlit. Heilbrigðiseftirlit verður sannarlega til staðar en það mun heyra undir og vera hluti af tveimur sterkum fagstofnunum, Umhverfis- og orkustofnun og Matvælastofnun. (Forseti hringir.) Ákvarðanir eru ekki að færast hérna á höfuðborgarsvæðið heldur verða þær teknar í nærsamfélaginu. Þetta eru stofnanir (Forseti hringir.) sem eru með starfsstöðvar um allt land og við munum nýta kraftana úti um allt land.