157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:00]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Þó að það sé af mörgu að taka þá vil ég aðeins fylgja þessu eftir. Þurfum við að vera í þeirri stöðu að þurfa að kaupa losunarheimildir? Er það eðlilegt að land sem við kennum alltaf við hreint þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða? Hvað þurfum við að gera til að losna við að kaupa losunarheimildir? Ráðherrann nefndi m.a. á kynningunni í dag að við þyrftum að fá bílaleigur í lið með okkur, við erum með Votlendissjóð og alls konar fyrirbæri. Hvað þurfum við að gera til að Ísland geti verið land sem þurfi ekki að kaupa losunarheimildir? Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann geti nefnt dæmi um lönd sem þurfa ekki að kaupa losunarheimildir, hvort við getum horft á einhver fordæmi til að fara eftir af því að í mínum huga er það bara ekki ásættanlegt að við séum að kaupa einhverjar mengunarheimildir.