157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:09]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ísland er í þeirri stöðu vegna þess að við höfum á fyrri árum undirgengist samstarf við Evrópusambandið um ákveðið regluverk til að draga úr losun. Ég verð reyndar að segja að mér finnst það regluverk einmitt hafa skilað Íslandi gríðarlegum fjárhagslegum ávinningi í gegnum tíðina, t.d. í formi tekna inni í ETS-kerfinu, þannig að það er ekki bara þannig að þetta sé ægilega fjárhagslega íþyngjandi fyrir Ísland. Ég held að t.d. stóriðjan myndi ekki vilja missa það að vera inni í þessu samræmda ETS-kerfi. Þetta hefur einmitt verið lykillinn að því að styðja við sérstöðu okkar og tryggja að við, ef svo má segja, græðum á henni í samstarfi um loftslagsmarkmið. Við erum auðvitað með mjög skringilega samsetningu losunar hérna á Íslandi. Við erum með mjög hátt hlutfall landnotkunarlosunar og stóriðjulosunar miðað við aðrar þjóðir. Ef við værum að setja okkur heildarmarkmið t.d. um loftslagsmál eins og aðrar þjóðir eru að gera þá væru þau miklu lægri heldur en önnur ríki hafa sett ef við prófum að þýða t.d. þau markmið sem hafa verið sett bæði áður og þegar ég var að kynna í dag yfir á svona heildarmarkmið. (Forseti hringir.) Þannig að Ísland hefur sannarlega notið góðs af því í öllu samstarfi og á alþjóðavettvangi í loftslagsmálum (Forseti hringir.) hvað við njótum mikillar sérstöðu, m.a. þegar kemur að hreinorkukerfunum okkar.