fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð yfir áherslumál hans í fjárlögum næsta árs. Ígrundaðar ákvarðanir varðandi orkukerfið byggjast á rannsóknum og yfirgripsmikilli þekkingu á þróun efnahagsmála og samfélagslegra þátta í umhverfinu. Allmiklar umræður hafa verið um uppbyggingu vindorkuvera hér á landi í tengslum við þá auknu orkuöflun sem þarf til uppbyggingar bæði í atvinnulífinu og á vegum orkuskipta. Mér finnst stefnan varðandi uppbyggingu orkuvera hafa verið í lausum reipum en almennt hefur stefnan verið að opinberir aðilar standi að eigin orkuframleiðslu eða orkuöflun. Því spyr ég: Stendur til að veita leyfi til uppbyggingar vindorkuvera áður en mörkuð hefur verið heildarstefna í lögum um þessi efni?