fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ráðherrann kom nú bara í síðasta svari inn á nánast allt það sem ég ætlaði að spyrja um hvað varðar vindorkuverin og þar á meðal ætlaði ég að fara meira inn á Garpsdalinn þar sem ég veit að það eru erlendir aðilar sem koma þar að. Þess vegna er svona aðalspurning mín til hæstv. ráðherra sú hvort við eigum ekki að halda allri orkuframleiðslu í landinu í eigu ríkis og sveitarfélaga. Það er svona stærsta spurningin en eiginlega allt það sem ég ætlaði að fara yfir kom frá ráðherra.