fjárlög 2026.
Frú forseti. Af því að ég fæ annað tækifæri til að eiga orðastað við hæstv. ráðherra þá langar mig til að ræða áfram um breytingar á rammaáætlun. Nú fengum við í umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta þingvetri ábendingar frá Landsvirkjun um að það yrði gengið svo frá málum varðandi rammaáætlun að það yrðu ekki neinir orkukostir sem yrðu settir í vernd, vatnsaflskostir, heldur yrði þeim haldið opnum. Í því sambandi var vísað m.a. til þjóðaröryggis og að við myndum ekki afsala okkur neinum orkukostum fyrir fram heldur setja það með þeim hætti að það myndi flokkast í biðflokk, sem er í rauninni þannig í dag að það þarf að breyta rammanum að einhverju leyti til að það gangi upp. Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta nýtur almenns fylgis og kannski ekki síst vegna þess að við vitum að það er alla vega meðbyr með vatnsaflsvirkjunum, ólíkt því t.d. sem hefur sést varðandi vindorkuna. Kemur það til greina af hálfu hæstv. ráðherra að leggja það til að breyta rammanum með þessum hætti?
Einnig vil ég vekja máls á því hvað okkur hefur gengið illa að klára línulagnirnar og þó að ég viti að það sé ekki akkúrat á borði ráðherrans er auðvitað sárgrætilegt að við skulum búa við þannig aðstæður, t.d. eins og varðandi Blönduvirkjun, að við skulum ekki geta fullnýtt virkjunina einfaldlega vegna þess að við getum ekki flutt orkuna frá. Þetta þýðir margra milljarða tap fyrir þjóðarbúið á hverju ári, því miður.