fjárlög 2026.
Forseti. Bara þannig að það sé sagt þá sagði ég ekki að vindorka væri slæmur orkugjafi. Hins vegar þarf að vanda til verka og ég ætla bara að leggja traust mitt á hæstv. ráðherra, að hann muni vanda til verka. Hann staðfesti það í raun og veru hér áðan að hann ætlar sér að fara hægt. Varðandi Garpsdalinn, af því að minnst var á hann hér áðan, þá langar mig bara að hvetja hæstv. ráðherra til að lesa t.d. umsögn Stefáns Gíslasonar, sem er í samráðsgáttinni; hún er mjög góð og lýsandi fyrir stöðuna. En síðan langar mig líka að spyrja ráðherra: Áttar hann sig á að vindorkuver, þar sem þau eru staðsett nálægt matvælaframleiðslusvæðum og þar sem þau eru — ég þekki alla vega til svæða þar sem er mikil ræktun, laxveiðiár og alls konar allt í kring, flugleiðir farfugla og annað slíkt. Telur hæstv. ráðherra verjanlegt yfirhöfuð að íhuga vindorkuver á slíkum stöðum? Og síðan langar mig að bæta (Forseti hringir.) einu við: Afsakið, forseti. Það er varðandi það að fara að lögum og reglum. Ég hef heyrt af tilviki þar sem mælimastur til rannsókna á eigin landi var sett upp í skjóli nætur (Forseti hringir.) áður en kærufrestur rann út. Telur hæstv. ráðherra slíkt ekki ámælisvert og að það krefjist viðbragða?
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)