fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans ræðu. Ég get alveg upplýst hann að það stefnir í það núna að ég verði búinn að vera í starfi í átta ár. En ég ætla alveg að vera sammála því að auðvitað þarf að taka á hlutunum og það þarf að skoða allt og það er ég virkilega að gera og við í ráðuneytinu. Við erum virkilega að velta hverjum einasta steini við til að reyna að finna út hvernig við getum bætt hlutina í nútíðinni. Því segi ég: Við verðum að læra af fortíðinni og ef þetta er rétt, þ.e. ef það stenst að við þurfum virkilega að taka á til þess að koma framtíðinni í þann farveg að við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum, þá keppum við að því.
Ég segi fyrir mitt leyti að þetta á í sjálfu sér ekkert að vera sérstaklega mikið pólitískt þrætuepli. Við erum algerlega sammála í grunninn um að það sem við þurfum að gera er að hugsa um menntun okkar og börnin okkar. Það er það sem við ætlum að gera og ég er að gera. Ég mun stefna að því leynt og ljóst að gera allt sem ég get til að sjá til þess að við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum í menntun. Þar af leiðandi er ég að rýna í öll þau mál sem varða ráðuneytið til að finna út nákvæmlega hvar skórinn kreppir og hvar er hægt að grípa strax til einhverra ráðstafana þannig að við sitjum ekki föst í sama farinu áratugum saman, eins og það hefur verið. Við höfum verið værukær, það er bara staðreynd. Við megum ekkert vera það lengur vegna þess að tæknin er þannig að við verðum að vera nútímavædd og vera í nútíðinni og sjá til þess að börnin okkar fái eins góða menntun og hægt er eins fljótt og mögulegt er.