fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar. Ég verð bara að segja alveg eins og er að eftir sex mánuði í ráðuneytinu er ég farinn að átta mig á því að ef við ætlum að sitja föst í fortíðinni og fara að velta öllu við þar til að átta okkur á því hvers vegna hlutirnir eru svona í dag, þá erum við ekki að bæta hlutina í dag. Ég segi fyrir mitt leyti að þeir sem hafa ráðið þessu ráðuneyti verða að svara fyrir það hvers vegna í ósköpunum hlutirnir eru komnir á þennan stað í dag. Ég ætla að vera bjartsýnn. Ég ætla að vera jákvæður. Ég ætla að horfa fram á veginn. Ég ætla að gera allt sem ég get til að sjá til þess að við séum ekki stopp, stöðnuð eða að eyða tímanum í það að velta fyrir okkur hvers vegna við erum á þessum stað. Ég vil fara lengra og við erum að taka á hlutum. Við erum að taka á málefnum barna með fjölþættan vanda. Við erum að rýna í það hvernig við getum aðstoðað þá sem eru ekki læsir eða skortir lesskilning. Við erum líka að átta okkur á því hvernig við getum hjálpað börnum sem eru með erlent tungumál til að læra íslensku. Þetta er það sem við þurfum að gera. Þetta er bara grunnurinn (Forseti hringir.) að því að sjá til þess að þessi mál verði í góðum farvegi.