157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:45]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna. Maður myndi vilja hafa meiri tíma með mennta- og barnamálaráðherra en ég vil byrja á því að fagna því að ég upplifi að það sé hafin ný sókn í menntamálum, að eftir ákveðna stöðnun, því miður, í menntakerfinu síðastliðin ár sé nú hafin ný sókn í menntamálum. Það byrjaði með matsferlinu sem ráðherra hefur vísað til og næstu skref eru miðlægur gagnagrunnur þar sem við fáum almennilega kortlagningu á stöðu menntakerfisins, því það er alger grunnur til að sækja fram.

Nýlega kom út skýrsla OECD þar sem verið var að taka út menntakerfin, m.a. á Íslandi, og þar er bent á að ein helsta breytan varðandi námsárangur nemenda er menntunarstig foreldra. Það hefur allt of mikil áhrif á það hvort nemandi fari í háskólanám eða ljúki háskólanámi sérstaklega. Það er talað um það í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að hefja eigi nýja sókn og bæta umhverfi nemenda og kennara og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er á dagskrá á næsta ári varðandi það að halda áfram þessari sókn sem nú er hafin, varðandi það að bæta umhverfi nemenda og kennara?

Það kemur einnig fram í þessari skýrslu OECD að fram undan er, sem er í rauninni viðvarandi en mun aukast, kennaraskortur á Íslandi. Mig langar því aðeins að spyrja út í kennaranámið: Hvernig getum við laðað að fleiri einstaklinga í kennaranámið og gert það hagnýtt þannig að við tryggjum að þeir nemendur sem klára kennaranám hafi þá færni sem þarf til að kenna í grunnskólum á Íslandi? Og tryggjum það líka að starfsumhverfi kennara sé með þeim hætti, því það eru fjöldamargir kennarar sem eru komnir til annarra starfa, að þeir snúi aftur inn í menntakerfið? Þetta eru í rauninni spurningar varðandi það hvernig við ætlum að halda áfram þessari sókn í umhverfi nemenda og kennara hér á landi til að tryggja það að íslenskir nemendur fái framúrskarandi menntun og við aukum árangur nemenda á alþjóðlegum mælikvarða.