fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég heyri að hann myndi líka gjarnan vilja hafa meiri tíma í þessa umræðu en blessunarlega er veturinn rétt að byrja og við fáum vonandi mörg tækifæri til að ræða menntamál á Íslandi á næstu mánuðum.
Í þessari sömu skýrslu OECD þar sem úttekt er gerð á íslensku menntakerfi og áskorunum til framtíðar er einnig komið inn á mikilvægi geðheilbrigðis og félagslegrar þátttöku barna og ungmenna. Mig langaði því að spyrja hæstv. ráðherra, þar sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum að ríkisstjórnin hyggst móta ungmennastefnu og beita sér fyrir jöfnu aðgengi allra barna að íþróttum, lista- og frístundastarfi: Hvaða skref á að stíga á næstu mánuðum og árum til að auka og tryggja þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi og íþróttastarfi? Það berast því miður fréttir frá sveitarfélögum sem eru að skera niður í opnu frístundastarfi fyrir ungmenni víða um land á sama tíma og ríkið er að taka yfir þriðja stigs þjónustu barna með fjölþættan vanda. Ég kalla eftir svari við því hvað ríkisstjórnin ætli að gera til að efla félagslega þátttöku barna og ungmenna.