157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:55]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir hennar innlegg. Ég er alveg innilega sammála henni, það skiptir auðvitað rosalegu máli hvernig við tökum á menntamálunum okkar. Ég skoðaði Menntaskólann á Ísafirði og ég veit að það eru fleiri svæði úti á landi sem eru í svipaðri stöðu og ég mun kynna mér það, taka þá alla þessa skóla og skoða þá. Við þurfum ekki bara að byggja heldur þurfum við líka að nútímavæða vegna þess að það er auðvitað skelfilegt ef maður heyrir það að þegar erlendir skólakennarar og skólameistarar koma og skoða þá haldi þeir að þeir séu komnir á safn þegar þeir eru að skoða verknámsskólana okkar vegna þess að þeir eru það langt á eftir.

Börn með fjölþættan vanda eru algerlega í forgangi. Við erum núna komin með spretthóp og við ætlum virkilega að taka á þeim málum. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Við erum að skoða ýmsa hluti og það verður bara að segjast alveg eins og er að þetta er málaflokkur sem við höfum einhvern veginn ekki sýnt nógu mikla athygli. En nú erum við komin með þetta í fangið. Nú munum við skoða allar leiðir og þess vegna erum við með spretthóp til að finna út hvar við eigum að byrja, hvernig við getum tekið á þessu markvisst og hvernig við getum komið þessu í lag eins fljótt og auðið er vegna þess að það er bara krafan okkar. Eins og ég hef oft sagt í þessum ræðustól, eitt barn í bið eftir þjónustu er einu barni of mikið, sérstaklega þegar bæði er undir velferð barnsins og fjölskyldunnar vegna þess að þetta er fjölskyldumál og þetta er ekki bara innan fjölskyldunnar, þetta getur farið langt út fyrir fjölskylduna. Þess vegna er svo mikilvægt að við tökum á þessu og það er alveg á hreinu að það erum við að gera.