157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:02]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans innlegg. Ég er alveg sammála honum, vonandi höldum við þessum barnamálum utan við pólitískt þras og sameinumst. Hann hefur langa reynslu af bæði skólastjórnun og skólastarfi og hefur gríðarlega mikla þekkingu á því sviði. En í sambandi við innleiðingu matsferilsins þá er það ekki rétt hjá honum að þetta verði alltaf sama prófið og verði fast inni í kerfinu. Það á alls ekki að vera þannig og það væri alveg fáránlegt. Þetta er sveigjanlegt kerfi og það er mjög einfalt að breyta. Þó að í grunninn sé hægt að kanna nákvæmlega sama hlutinn þá verður mjög einfalt að búa til mismunandi próf. Þetta er líka gert upp á það að ekki þurfi allir að vera að taka prófið á sama tíma. Við verðum að hafa sveigjanleika til að sjá til þess. Ef það hentar kannski ekki einum skóla að vera með prófið 20. október og annar vill hafa það í desember, þá er hægt að hafa það þannig, þeir skólar munu ekki vera með sama prófið. Það er akkúrat verið að tryggja það með þessum matsferli; hann verður það sveigjanlegur að það verður engin hætta á því að hægt verði að afrita og líma nákvæmlega sama prófið, nákvæmlega sömu svörin.

Þetta er mjög flott þróun og ég treysti Miðstöð menntunar og skólaþjónustu algerlega til að sjá um að þessi matsferill muni virka og líka þróun og innleiðing á Frigg sem er miðlægur stafrænn nemendagagnagrunnur þar sem verða heildstæðar upplýsingar um fólk. Það sem er líka svo spennandi við þetta er að þarna getum við fylgst með barni í rauntíma. Við getum gripið inn í og við getum séð, ef við erum að grípa inn í og vísa barni t.d. til talmeinafræðings, hvort það virki. Það er þessi fyrirsjáanleiki sem við munum gera allt sem við getum til að láta virka.