157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:06]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir þetta. Ég verð bara að segja alveg eins og er að þær upplýsingar sem ég fékk á sínum tíma, þegar matsferillinn var kynntur fyrir mér, voru nákvæmlega þær að þetta ætti ekki að vera svona. Ég ætla að skoða það. Ég er alveg sammála hv. þingmanni í því að það er ekki gott ef það er þannig. Ég tel að við séum það tæknivædd í dag að við eigum ekki að þurfa að hafa það svoleiðis. Ég veit að þetta á eftir að fara inn í nefnd og við eigum örugglega eftir að ræða þetta þar. Ég er algjörlega á því að við eigum að finna lausnir á þessu máli. Ég treysti því að við verðum sammála um það og að við munum finna lausnir; að við munum sjá til þess að börnin taki próf og viti ekki fyrir fram hvernig þau verða og að niðurstaðan verði þannig að við getum byggt á henni og að við fáum þar af leiðandi líka niðurstöðu um það hvernig við getum hjálpað þeim börnum sem eru í vanda. Ef það tekst erum við komin á frábæran stað.