fjárlög 2026.
Frú forseti. Það kom fram í máli hv. þingmanna Ingvars Þóroddssonar og Dags B. Eggertssonar að samantekt á umræðum og hugmyndum minni hlutans megi nokkurn veginn ramma inn í lægri tekjur, hærri útgjöld, minni halla. Ekki þarf meiri háttar þekkingu til að átta sig á, eins og ágæt dæmisaga hv. þm. Dags B. Eggertssonar sýnir, að þessi þrjú atriði fara ekki saman. Ég vil þó segja að mín reynsla af þessari umræðu er heldur samsettari og vil í þessu samhengi hæla bæði þingmönnum Miðflokksins og Framsóknarflokksins fyrir ágætlega málefnalegar ábendingar, þó að á ólíkum sviðum séu og með ólíkum rökum settar fram. Raunar tók hv. þm. Bergþór Ólason ágæta samantekt á fjölmörgum áhugaverðum hugmyndum um hagræðingaraðgerðir.
Ég hef lifað eftir því alllengi og það geta þeir staðfest sem mig þekkja að ég hef reynt að lifa eftir mottóinu; tala minna, gera meira. Mér þykir auðvitað miður að ekki séu allir sammála þessu og sakni mjög meiri málalenginga af minni hálfu. Ég mun reyna að taka tillit til þess en lofa þó engu.
Ég vil kannski taka í restina hér á einstaka misskilningi sem ekki virðist hafa verið upprættur þrátt fyrir að hafa verið nefndur nokkrum sinnum. Í fyrsta lagi er talað um niðurfellingu ráðstöfunar séreignarsparnaðar. Þessi setning hefur verið í fjárlögum núna í nokkur ár, enda var um tímabundið úrræði að ræða og það hefur aldrei verið framlengt til meira en eins árs í senn. Það er ætlun þessarar ríkisstjórnar að taka þetta fyrirkomulag til endurskoðunar með það að markmiði að koma því í einhvers konar varanlegt fyrirkomulag enda hefur reynslan af því verið á margan hátt ágæt.
Það koma fram í umræðum, m.a. í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar hér í restina, fullyrðingar um einhvers konar Íslandsmet í útgjöldum og er þá iðulega miðað við krónutöluna. Þeir sem einhverja reynslu hafa af lestri fjárlaga gera sér grein fyrir því að í landi þar sem er viðvarandi hagvöxtur, eins og hefur verið á Íslandi, er hægt að halda þessari fullyrðingu fram um hver einustu fjárlög sem lögð eru fram og hún þýðir ekki neitt. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt að þar sem gjaldmiðlar eru óstöðugir og þar sem vöxtur er viðvarandi er eina viðmiðið sem nokkurt vit er í að beita samanburður við heildartekjurnar í hagkerfinu sem eru mældar með vergri landsframleiðslu. Ég gef því lítið fyrir slíkar fullyrðingar. Telji þingmenn að þeir geti slegið ryki í augu þjóðarinnar með slíkri framsetningu tel ég að mikið skorti á þekkingu þeirra á þessari þjóð sem hefur miklu dýpri þekkingu og meiri skilning en þeir gera ráð fyrir.
Ég vil að þessu sögðu þakka fyrir umræðuna. Ég hef átt orðaskipti við nær alla sem tóku þátt í almennri umræðu ásamt og fleirum. Þau hafa verið að jafnaði uppbyggileg og eins og ég nefndi er ástæða til að hæla stjórnarandstöðuflokkunum, alla vega sumum þeirra, fyrir málefnalega framsetningu, málefnalegar ábendingar og uppbyggilegar hugmyndir. Ég er sannfærður um að þær muni allar verða teknar til gaumgæfilegrar skoðunar af hv. fjárlaganefnd.