varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Sigurjón Þórðarson verði fjarverandi á næstunni og formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Ingvari Þóroddssyni um að hann muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, Katrín Sif Árnadóttir, 3. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Tryggvi Másson, en 1. og 2. varamaður á lista hafa boðað forföll, og 1. varamaður á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, Heiða Ingimarsdóttir.
Katrín Sif Árnadóttir og Heiða Ingimarsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.