157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

aðgerðir stjórnvalda í útlendingamálum.

[15:10]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Í síðustu viku var hæstv. forsætisráðherra í viðtali í hinum ágæta útvarpsþætti Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og talaði þar af talsverðri skynsemi, fannst mér, m.a. um þá gríðarlegu fjölgun sem hefur orðið í landinu með miklum innflutningi fólks undanfarin ár. Svo ég fari nú rétt með þá ætla ég að vitna beint í hæstv. forsætisráðherra sem sagði, með leyfi forseta:

„Þetta er fólksfjölgun sem hefur hvergi sést í hinum vestræna heimi. Við erum langt, langt umfram það sem nágrannalöndin okkar eru að sjá.“

Þetta er alveg rétt og ánægjulegt að hæstv. forsætisráðherra skuli hafa gert sér grein fyrir þessu. Ég læt vera að rifja upp hvernig var talað um mig eða aðra þingmenn Miðflokksins á undanförnum árum af hálfu Samfylkingar, Viðreisnar og fleiri þegar við reyndum að benda á þessa hluti. Spurning mín lýtur að viðbrögðum: Hvernig hyggst hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn hans taka á þessu stóra máli? Hæstv. dómsmálaráðherra hefur kynnt frumvörp sem varða útlendingamál en þau eru fyrst og fremst endurflutt mál frá síðustu ríkisstjórn, ágætar breytingar eins langt og þær ná en eru ekki til þess fallnar að taka á umfangi þessa vanda. Á sama tíma, reyndar, eins og hæstv. forseti nefndi hérna áðan, er aftur dreift frumvarpi um vegabréfsáritanir sem bent var á að gæti aukið á losarabrag við veitingu vegabréfsáritana til Íslands síðast þegar það var hér til umræðu. Spurningin er því þessi: Hvernig og hvort mun hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin grípa til aðgerða í samræmi við tilefnið? Hvers er að vænta og hvenær? Ef hæstv. forsætisráðherra gerir sér raunverulega grein fyrir stöðunni, með hvaða hætti verður þá tekið á henni?