reglugerð um skel- og rækjubætur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt að ég fékk samkvæmt forsetaúrskurði málefni svokallaðs 5,3% kerfis, þess sem kveðið er á um í 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, þ.e. byggðakerfið. Við erum í greiningarvinnu núna og erum að fara yfir kerfið í heild og skoða m.a. byggðaleg áhrif og áhrif af þessum pottum. Í 5,3% kerfinu eru 47% af pottinum strandveiðar. Svo erum við að tala um línuívilnun sem eru 6–7% og svo rækju- og skelbætur, almenna byggðakvótann og svo kvóta Byggðastofnunar og frístundaveiðar.
Varðandi þessi kerfi þá munum við skoða þetta út frá því að einfalda kerfið og hafa það markvissara. Ég vísa þar t.d. í skýrslu Ríkisendurskoðunar varðandi það að ekki hefur farið fram greining á byggðalegum áhrifum af almenna byggðakvótanum. Ég get líka vísað í skýrsluna Auðlindin okkar þar sem talað er um rækju- og skelbætur, en þetta eru bætur sem hafa verið í 30 ár ef ég man rétt, ef ekki meira en 30 ár, og svo varðandi línuívilnun vegna stokkunar og handbeitingar. Það er ekkert í lögunum sem segir til um það hvenær eigi að gefa út þessa reglugerð en við munum vinna hratt og reyna að gera það sem allra fyrst. Það mun koma í ljós hver úthlutunin verður þegar þar að kemur.