157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

reglugerð um skel- og rækjubætur.

[15:22]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður talar um að umturna kerfinu á miðju fiskveiðiári, það eru nú einungis nokkrar vikur liðnar af því, fiskveiðiárið hófst 1. september síðastliðinn. Greiningarvinna á kerfinu er í fullum gangi og ég vænti þess að niðurstöður liggi fyrir í síðasta lagi um áramót. Það var síðast í morgun sem ég óskaði eftir því að vinnunni yrði hraðað enn meira. Við munum hraða henni svo sannarlega eins og kostur er. Ég hef verið í virku samráði við hagsmunaaðila og átt fundi með mörgum þeirra og farið yfir þessi mál, m.a. frá Stykkishólmi út af skelbótum og fleiri aðilum á Vestfjörðum o.fl. En markmið mitt er skýrt. Það er að skapa einfaldara, skilvirkara og gagnsærra kerfi til framtíðar. Eins og Ríkisendurskoðun benti á í skýrslu sinni á síðasta ári hafa markmiðin með pottunum, ívilnunum, rækju- og skelbótum og almennum byggðakvóta verið mjög óljós. Hver eru markmiðin? Það er stóra spurningin. Við þurfum að tryggja að þær aflaheimildir sem ráðstafað er í þessum tilgangi skili raunverulegum og mælanlegum árangri í viðkomandi byggðarlögum. Það er grundvallaratriði og það er það sem við erum að horfa á. Ég vænti þess að við komum með frumvarp sem allra fyrst, vonandi fyrir áramót. (Forseti hringir.) Það er sett á þingmálaskrá í febrúar en fyrsta verkefnið er væntanlega að ég muni gefa út aflaheimildir fyrr, áður en frumvarpið kemur fram. Svo komum við með frumvarpið og ég vænti þess að þingheimur muni samþykkja það fyrir strandveiðitímabilið.