157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

fjárlög og afkomuhorfur þessa árs.

[15:23]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Nú veit ég að hæstv. fjármálaráðherra er afar ánægður með stöðugleikaregluna, sem á að hjálpa ríkisstjórninni að raunútgjöld hækki ekki meira en 2% milli ára, og þekkir vel útreikninga á henni. Reglan hjálpar reyndar ekkert til við að hvetja ríkisstjórnina til að draga úr útgjöldum. Við sjáum að útgjöld milli áranna 2025 og 2026 eru að aukast meira en á milli áranna 2024 og 2025. Þannig að allt tal um að stöðugleikareglan sé farin að virka og hafa áhrif er eins og svo margt annað hjá þessari ríkisstjórn; þau segja eitt en gera annað.

Varðandi stöðugleikaregluna þá kemur fram í lögum um opinber fjármál, með leyfi forseta:

„Við mat á hámarki raunvaxtar útgjalda hvers árs samkvæmt skilyrði 1. tölul. 1. mgr. skal taka tillit til áhrifa sérstakra ráðstafana í tekjuöflun ríkissjóðs til hækkunar eða lækkunar.“

Mér sýnist að ef þetta var gert og tekið tillit til sérstakrar tekjuhækkunar upp á sirka 14–15 milljarða þá sé ekkert svigrúm til útgjaldaaukningar. Við erum þá þegar komin í 2% útgjaldaaukningu og það er t.d. ekki búið að samþykkja kílómetragjaldið. Því spyr ég: Var tekið tillit til sérstakra ráðstafana í tekjuöflun eða misfórst það? Ef það misfórst ekki, hversu háa mat ráðherrann sérstaka tekjuöflun í nýju fjárlagafrumvarpi? Ég átta mig á að þetta kann að vera smá tæknilegt en ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er mikill áhugamaður um stöðugleikaregluna, þekkir vel fjárlagafrumvarpið og þekkir vel allan útreikning á því.