157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

stöðugleikareglan og sérstakar ráðstafanir í tekjuöflun.

[15:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ágætar spurningar. Það hefur þegar komið fram nokkuð ítrekað að við hv. þingmaður erum ekki sammála um stöðugleikaregluna en mér er bæði ljúft og skylt að halda þeim rökræðum áfram. Það kom raunar fram í máli hv. þingmanns að stöðugleikareglan bítur og ég skil þess vegna alls ekki fullyrðingar hv. þingmanns um að stöðugleikareglan virki ekki. Hún getur ekki bæði ekki virkað og bitið, þannig að augljóst er að hún er einmitt að skila þeim árangri sem vonast var til.

Það er hins vegar rétt sem hv. þingmaður bendir á að svigrúmið samkvæmt stöðugleikareglunni er því sem næst að fullu nýtt eins og það kemur fram í þeim fjárlögum sem ég hef lagt fram.