157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

fjárlög og afkomuhorfur þessa árs.

[15:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Það liggur við að ég tárist þegar ég fæ tækifæri eftir tækifæri til að hæla eigin verkum og ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir það. Ekki veitir nú af eins og gagnrýni getur oft verið á fjármálaráðherra. En jú, afkoman hefur batnað til mikilla muna og er þar ýmsu fyrir að þakka. Mig langar til að nefna í því samhengi að það gekk mjög vel að gera upp ÍL-sjóð, sem var ákaflega stórt mál og hafði töluverð áhrif á afkomuna, og að selja Íslandsbanka, sem einnig hafði mjög veruleg áhrif á afkomuna, sem og að gera ákveðnar úrbætur á lausafjárstöðu ríkisins. Allt þetta hefur hjálpað okkur til að ná betri árangri og er það mjög vel.