breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga ársins 2026. Líkt og venjubundið er þá felur frumvarpið í sér margs konar breytingar á lögum í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarpsins. Efnisatriði frumvarpsins eru fjölbreytt og hafa áhrif bæði á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Ég ætla að fjalla um þau sem mestu máli skipta.
Fyrst vil ég nefna að í frumvarpinu eru tillögur um að krónutöluskattar hækki um 3,7% í samræmi við þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Sú aðgerð miðar að því að draga úr þenslu og verðbólgu. Hækkunin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, bensín-, olíu- og kolefnisgjalda, Framkvæmdasjóðs aldraðra og vegna Ríkisútvarpsins og loks nær hækkunin til kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða og bifreiða- og kílómetragjalds.
Áætlað er að þessi verðlagsuppfærsla skili ríkissjóði samtals um 4,3 milljörðum og af því nemur hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra samtals 400 milljónum en þau tvenn gjöld hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Að öðru leyti eru áhrif hinna breytinganna til hækkunar á vísitölu neysluverðs áætluð 0,12%.
Verði frumvarp um nýtt kílómetragjald vegna notkunar ökutækja að lögum fyrir áramót er gert ráð fyrir því að áform um hækkun á kolefnisgjaldi, vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi, kílómetragjaldi og kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða falli brott, enda nýtt kerfi að taka við. Gerist það er áætlað að verðlagsuppfærsla annarra gjalda en þeirra sem felld verða niður skili ríkissjóði samtals um 2,3 milljörðum og hækkun vísitölu neysluverðs verði 0,06%.
Forseti. Lagt er til að gjöld vegna Fjármálaeftirlits og skilavalds Seðlabankans taki breytingum, að mestu leyti til hækkunar í takt við verðlagsþróun. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur Seðlabankans. Gjöldin eru ýmist ákvörðuð sem hlutfall af eignum eða tekjum eftirlitsskyldra aðila eða föst fjárhæð. Áætlaður rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins árið 2026 er 3.575 milljónir. Áætlað eftirlitsgjald vegna fjármögnunar Fjármálaeftirlitsins sama ár er 3.508 milljónir og gert ráð fyrir að aðrar tekjur verði 67 milljónir. Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds er 105 milljónir sem endurspeglar áætlaðan rekstrarkostnað. Gjaldhlutföll hækka um 3,4% og fastagjöld annarra aðila en viðskiptabanka eru hækkuð.
Lögð er til lækkun á gjaldhlutfalli af álagningarstofni samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Útlán gjaldskyldra aðila 31. desember 2024 voru um 5.669 milljarðar og áætlaður kostnaður vegna reksturs umboðsmanns skuldara var um 370 milljónir. Álagningarprósentan verður því 0,0065% á næsta ári en álagningarstofn gjaldsins er öll útlán gjaldskyldra aðila.
Forseti. Lögð er til 3,7% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra. Samkvæmt því verður gjaldið 14.614 kr. á hvern gjaldanda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2026 vegna tekna ársins 2025. Áætlað er að hækkunin skili ríkissjóði um 133 milljónum. Jafnframt er lögð til framlenging á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða í lögum um málefni aldraðra þar sem kveðið er á um að Framkvæmdasjóður aldraðra hafi tímabundna heimild til að kosta rekstur hjúkrunarrýma aldraðra.
Forseti. Lagt er til að föst krónutala sóknargjalda lækki úr 1.221 kr. á mánuði samkvæmt gildandi lögum í 1.133 kr. Lögboðið framlag til sókna þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga breytist að öllu jöfnu í samræmi við áætlaða breytingu á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga 16 ára og eldri, sem og fjölgun einstaklinga. Nú er hins vegar, eins og í fjárlögum fyrir árið 2025, með breytingu á lögum um sóknargjöld, gert ráð fyrir að fastsetja fjárhæð sóknargjalda. Lækkunin nú er vegna þess að horfið er frá sérstakri hækkun um 88 kr. sem Alþingi samþykkti fyrir árið 2025. Frumvarpið gerir ráð fyrir 3.298 milljóna framlagi til þeirra liða sem sóknargjald reiknast á að teknu tilliti til almennra aðhaldskrafna frumvarpsins og nemur heildarlækkun sóknargjaldsins frá gildandi fjárlögum því 187 milljónum.
Forseti. Gert er ráð fyrir að fjárhæð losunargjalds, vegna hvers tonns gjaldskyldrar losunar, verði lækkað úr 10.511 kr. í 10.123 kr. til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður. Jafnframt eru lagðar til breytingar á fjárhæð úrvinnslugjalds á smurolíu, halógeneruð efnasambönd, HFO-efni, einnota rafrettur, íhluti í margnota rafrettur, rafhlaupahjól, svifbretti og hleðslukapla fyrir rafbíla auk íhluta í lítil raftæki. Þá er lögð til hækkun skilagjalds og umsýsluþóknunar á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar hafi óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en hækkun skilagjalds og umsýsluþóknunar muni leiða til aukinna skila í skilakerfinu og afgangur verði af rekstri til uppbyggingar á skilakerfinu sem um leið verði til að bæta þjónustustigið.
Forseti. Í frumvarpinu er lögð til framlenging á ákvæðum til bráðabirgða í lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og lögum um tryggingagjald sem kveður á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2026. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildi frá árinu 2013. Eftir sem áður er gert ráð fyrir óbreyttri fjármögnun frá atvinnurekendum og lífeyrissjóðum, eða 0,10%. Gert er ráð fyrir því að breyta samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra annars vegar og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs hins vegar til samræmis og að á árinu 2026 fái hann framlag á fjárlögum.
Forseti. Í frumvarpinu lagt til að samnýting skattþrepa verði felld brott í því skyni að fækka ívilnunum og gera skattkerfið einfaldara, skilvirkara og ódýrara í framkvæmd. Samnýtingin er frávik frá þeirri einstaklingsskattlagningarstefnu sem einkennir grunngerð tekjuskattkerfisins. Þessi ívilnandi heimild var sett árið 2010 til að milda áhrifin sem upptaka þriggja þrepa tekjuskattkerfis hafði á tekjuhæstu skattgreiðendurna. Hún nýtist hjónum og sambúðarfólki í þeim tilvikum þegar annað þeirra er í efsta tekjuskattsþrepi en hitt nær ekki að fullnýta miðþrepið. Þá er heimiluð tilfærsla á tekjum úr efsta þrepi niður í miðþrep, en þó með ákveðnu hámarki. Fólk sem er ekki í sambúð, til að mynda einstæðir foreldrar, njóta ekki undanþágunnar. Brottfall samnýtingar skattþrepa styður almennt hlutverk hins opinbera að stuðla fremur að því að jafna tekjudreifinguna frekar en að auka hana, en við álagningu opinberra gjalda 2025 nutu konur 19% af samnýtingunni en karlar 81%. Það er efsti hluti tekjudreifingarinnar sem nýtur þessarar ívilnunar.
Ég vil sérstaklega benda á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur gagnrýnt regluna, sagt hana ómarkvissa þegar litið er til grunngerðar skattkerfisins og stefnu í skattamálum. Ívilnunin gagnist aðeins allra tekjuhæstu heimilunum og ábatinn sem hún færir úr ríkissjóði til hvers heimilis í þessum hópi ákvarðist af tekjudreifingu hjónanna í hverju tilfelli.
Áætluð tekjuáhrif vegna áforma um að falla frá þessari ívílnun eru talin vera 2,8 milljarðar á ári og er matið miðað við framreiknaðar forsendur um laun og þrepamörk. Áhrifa þessarar breytingar verður ekki vart fyrr en árið 2027 vegna tekna ársins 2026 og verða þau sömu í krónum talið á hverju ári á tímabilinu 2028–2030.
Forseti. Lagt er til að ákvæði í lögum um tekjuskatt, sem kveður á um ráðstöfun hluta af óráðstöfuðum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts, verði fellt brott. Segja má að samhliða upptöku frítekjumarks fjármagnstekna og síðar tvöföldun þess árið 2020 hafi í raun verið komið á persónuafslætti fjármagnstekna. Auðvitað hefði verið rétt að fella niður við það tækifæri ákvæðið um að heimilt væri að nýta persónuafslátt með þessum hætti. Gert er ráð fyrir því að jákvæð tekjuáhrif á ríkissjóð vegna afnáms ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts nemi 600 milljónum.
Lagt er til að bráðabirgðaákvæði sem kveður á um útreikningsreglur vaxtabóta verði framlengt eitt ár í viðbót sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2026 og voru á þessu ári. Á grundvelli þeirra forsendna er áætlað að útgjöld vegna vaxtabóta nemi 800 milljónum. Frá og með 1. janúar 2027 er síðan gert ráð fyrir að vaxtabætur verði felldar brott vegna þeirra breytinga á húsnæðisstuðningi. Undanfarin ár hefur honum verið beint í önnur sértækari úrræði á borð við skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð og hlutdeildarlána til íbúðarkaupa.
Jafnframt er lagt til að tímabundnar reiknireglur barnabóta verði framlengdar um eitt ár sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2026 og á árinu 2025. Á þeim forsendum er áætlað að útgjöld vegna barnabóta nemi allt að 21 milljarði á árinu 2026 og hafi jákvæð áhrif á ráðstöfunartekjur heimila og þá sérstaklega barnafólks og lág- og millitekjuhópa.
Forseti. Lagt er til að framlengd verði heimild samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum til að nota fé ofanflóðasjóðs til greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða um eitt ár eða til 31. desember 2026. Gert er ráð fyrir að hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við næsta áfanga hættumats vegna eldgosa verði allt að 75 milljónir á ári, við gerð hættumats vegna vatnsflóða allt að 58 milljónir og við gerð hættumats vegna sjávarflóða allt að 29 milljónir. Framangreindar fjárhæðir eru þó allar með fyrirvara um árlegar fjárheimildir ofanflóðasjóðs.
Lagðar eru til breytingar á lögum um aukatekjur ríkissjóðs í tengslum við annars vegar gjald fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt og hins vegar fyrir umsóknir og þjónustu sýslumannsembættanna og Þjóðskrár. Gjaldskrá Útlendingastofnunar vegna umsókna um dvalarleyfi er ekki í nokkru samræmi við gjaldskrár annars staðar á Norðurlöndunum og það sama á við um vegna umsókna um ríkisborgararétt. Vísbendingar eru um að þessi lága gjaldskrá skapi ranga hvata og óeðlilegt álag á Útlendingastofnun og hafi neikvæðar afleiðingar víðar í samfélaginu. Gert er ráð fyrir því að hækkun gjalda vegna umsókna um dvalarleyfi og ríkisborgararétt muni hafa í för með sér umtalsverða hækkun tekna í ríkissjóð, um leið og hækkunin dragi úr tilhæfulausum umsóknum sem að sama skapi er gert ráð fyrir að muni hafa jákvæð áhrif á umsýslu Útlendingastofnunar. Ætla má að tekjuaukning ríkissjóðs geti numið rúmlega 500 milljónum vegna þessara breytinga.
Tímabært er að breyta og einfalda einstaka gjaldtökuheimildir vegna umsókna og þjónustu sýslumannsembættanna og Þjóðskrár, bæta við nýjum og hækka gjöldin almennt þannig að þau taki mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára og endurspegli betur tíma og kostnað ríkisins við að veita þjónustuna. Þess vegna er lagt til að gjaldtökuákvæði verði fellt brott úr sérlögum og í staðinn kveðið á um gjöldin í lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Þá er lagt til að gjöldin taki breytingum í samræmi við verðlagsþróun, að þau hækki hlutfallslega og jafnframt að gjöldin verði innheimt við framlagningu umsókna hjá sýslumanni. Sé tekið mið af meðalfjölda mála síðustu fjögurra ára og hækkun gjalda eins og lagt er til í frumvarpinu kemur tekjuaukning ríkissjóðs til með að nema rúmlega 500 milljónum.
Forseti. Lagt er til að skrásetningargjald í opinbera háskóla hækki úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Árið 2013 samþykkti Alþingi hækkun á skrásetningargjöldum úr 60.000 kr. í 75.000 kr. fyrir hvern nemanda og var sú breyting rökstudd með tölulegum upplýsingum úr bókhaldi Háskóla Íslands. Í beiðni ríkisháskólanna um hækkun skrásetningargjalda kemur fram að samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskóla Íslands hefði skrásetningargjaldið þurft að vera um 180.000 kr. á síðastliðnu ári til að nægja fyrir útgjöldum sem því er ætlað að standa undir. Samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskólans á Akureyri árið 2024 er kostnaðurinn um 160.000 kr. og hjá Landbúnaðarháskóla Íslands er fjárhæðin um 232.000 kr. fyrir árið 2024. Áætlaðar viðbótartekjur af hækkun skrásetningargjalds opinberra háskóla úr 75.000 kr. í 100.000 kr. eru metnar tæplega 617 milljónir.
Lagt er til að innviðagjald sem greitt er fyrir hvern farþega á skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum á meðan skip dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins verði lækkað úr 2.500 kr. í 2.000 kr. Um tímabundna lækkun er að ræða sem gildir einungis árið 2026 og með henni er komið til móts við sjónarmið rekstraraðila skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum sem telja að of lítill fyrirvari hafi verið á gjaldtökunni þegar hún kom fyrst til framkvæmda í byrjun ársins. Gert er ráð fyrir að tímabundin lækkun á innviðagjaldi leiði til 380 milljóna lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Áætlað er að tekjur af gjaldtökunni nemi 1,2 milljörðum á árinu 2026, að teknu tilliti til lækkunar á gjaldinu.
Forseti. Að lokum er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að fjárveiting til Íslandsstofu, sem ákvörðuð er af Alþingi með fjárveitingu í fjárlögum hverju sinni, verði ekki ákvörðuð sem stærð af markaðsgjaldi samkvæmt lögum um Íslandsstofu. Í lögunum segir að tekjur Íslandsstofu skuli aldrei vera lægri en sem nemi markaðsgjaldi en það er nú 0,05% og er lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald. Samhliða er lagt til að ákvæðið í lögum um Íslandsstofu sem fjallar um álagningu markaðsgjaldsins verði fellt brott og flutt efnislega óbreytt yfir í lög um tryggingagjald enda á það sér frekar efnislega samsvörun í þeim lögum. Gert er ráð fyrir því að áhrif þeirrar breytingar að framlög til Íslandsstofu verði ákvörðuð af Alþingi, með fjárveitingu í fjárlögum hverju sinni, leiði til þess að framlög til Íslandsstofu verði 81 millj. kr. lægri en ella. Fjárveitingin á fjárlögum ársins 2025 nam 1.214 milljónum.
Forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.