157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:54]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ein mínúta er stuttur tími. Mig langar að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um innviðagjöldin á skemmtiferðaskipin. Mér þykir hafa farið óhönduglega með þessi mál á undanförnum árum. Sá sem hér stendur talaði fyrir því fyrir ári síðan að tollfrelsi yrði lengt um a.m.k. eitt ár, sem var gert. Ég hef ekki heyrt neina umræðu um það. Það er kannski ekki alveg hluti af þessu máli, en hins vegar snýr innviðagjaldahlutinn að því. Það var mikið rætt hér síðasta vor og í sumar um að þessu yrði kippt í lag með einhverjum góðum hætti en svo fæðist hér lítil mús sem er að lækka gjaldið til eins árs úr 2.500 kr. í 2.000. Það var umræða og það voru umsagnir um að gera þetta á fjórum árum á sínum tíma og taka þetta upp í einhverjum fyrirsjáanleika. Hefði ekki þurft að gera það með miklu öflugri hætti í ljósi þess hvaða áhrif þetta hefur víða á byggðir landsins, varðandi leiðangursskip, skemmtiferðaskip og tekjur hafnarsjóða?