157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við þekkjum það á þessum köldu svæðum eins og í ferðaþjónustunni, að leiðangurs- og skemmtiferðaskip hafa verið að gera mjög góða hluti fyrir atvinnulíf á viðkomandi stöðum og nýta vannýtta innviði sem þar eru víða og hafa tekjur. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að umgjörðin um þessi mál sé með öflugum hætti. Við sjáum að beiðnir um pláss við hafnir landsins vítt og breitt hafa farið virkilega niður víða í sumar og það lítur þannig út með næstu ár. Þurfum við ekki að setja þetta í einhvern farveg þannig að á þessum köldustu svæðum í ferðaþjónustunni og þar sem þetta eru kannski tekjur í hafnarsjóðum landsins? 50–70% koma af þessum skipum en það er hrunið. Endar þetta þá ekki bara með því að að menn fari í gamla farið og hafnarsjóðir landsins fari að sækja til fjárveitingavaldsins í þinginu með að hjálpa til með slæman rekstur hafna landsins? Er þetta ekki eitthvað sem við þurfum að fara að gera með kerfisbundnari og öflugri hætti?