157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Hv. þingmaður þekkir mætavel þá umræðu sem varð um þetta gjald og þá gagnrýni sem kom á það sem er nákvæmlega sú gagnrýni sem hv. þingmaður dregur hér upp aftur, þ.e. að það hefði átt að fara varfærnislegar í þetta og í fleiri skrefum. Nú er það verk þessarar ríkisstjórnar að lækka gjaldið sem kemur þá til móts við þau sjónarmið. Ég held síðan að það sé mikilvægt að efnahags- og viðskiptanefnd taki um þetta umræðu. Eins og hv. þingmaður bendir á eru margar hliðar á þessu máli. Hann nefnir sérstaklega ferðaþjónustu á köldum svæðum sem eru allt málefnaleg sjónarmið.