157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:58]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar að spyrja hér stuttlega út í hinar svokölluðu krónutöluhækkanir sem eru samkvæmt frumvarpinu 3,7% og það segir í frumvarpinu að það sé miðað við áætlaða tólf mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs árið 2025 samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Nú verð ég að fá að spyrja hæstv. ráðherra af hverju ríkisstjórnin er ekki metnaðarfyllri en svo að miða við 2,5% sem er verðbólgumarkmið Seðlabankans sem hefur verið talinn vera góður bragur á, bæði til að senda þau skilaboð og reyna að láta þetta heildarsamhengi allt saman ganga sem best upp. Er ríkisstjórnin búin að gefast upp á því verkefni, sér í lagi ef við höfum í huga að þessar krónutöluhækkanir bitna hlutfallslega verst á þeim heimilum sem hafa minni tekjur þannig að einhver myndi nú ætla að þetta væri keppikefli fyrir ríkisstjórnina að gera betur í þessu risastóra samhengi?