157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir ágæta spurningu og að gefa mér tækifæri til að veita andsvar við henni vegna þess að það eru þarna sérstök sjónarmið á margan hátt. Skattahækkanir almennt séð, og það breytir engu hvort það eru þessi krónutölugjöld eða eitthvað annað, eru aðhaldsaðgerðir og ef það er markmið að beita ríkisfjármálum til að vinna gegn verðbólgu þá gerirðu það ekki með því að sleppa hækkun eða breytingum gjalda. Það sem raunverulega gerist er að ef þessari aðferð er beitt þá smám saman rýrna gjaldstofnarnir. Ég nefndi hér í ræðu minni ágætt dæmi sem er skráningargjald opinberu háskólanna sem ekki hefur fengist breyting á í áratug og er smám saman orðið úr algjöru samhengi við kostnaðinn við að veita þjónustuna.