breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir aðra afbragðsgóða spurningu. Ég legg auðvitað fram frumvarpið og fjárlög einnig með það að markmiði að þau verði samþykkt. Þetta er tillaga sem er vandlega ígrunduð. Hins vegar átti ég mjög góðan orðastað hér við þingheim í síðustu viku um fjárlagafrumvarpið og ýmsar hugmyndir ýmissa flokka um aðgerðir sem hægt væri að grípa til til að auka aðhald. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að svigrúmið er mjög takmarkað í þessum fjárlögum. Ég tel það stöðugleikareglunni til tekna en um það geta auðvitað verið skiptar skoðanir.