breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra nánar út í þau orð hans sem ég þó lýsi mig ósammála um að skattahækkun sé aðhaldsaðgerð. Ég fæ kannski að ræða það í ræðu hér á eftir. En mig langar að spyrja sérstaklega út í gjöld á Háskóla Íslands sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur rakið að er verið að hækka. Með vísan til þess að þetta eru gjöld sem eiga að standa straum af skrásetningu og innritun nemenda hlýt ég að spyrja af hverju ekki sé gert ráð fyrir því að þessi gjöld hækki til samræmis við það sem háskólinn sjálfur hefur lagt fram og metið og lagt fram útreikninga og rökstutt með málefnalegum hætti að þurfi að vera miklu hærri. Það liggur fyrir og er rakið hér í frumvarpinu að þessi gjöld þyrftu að vera 180.000 kr. til að standa undir skrásetningu nemenda. Því spyr ég: Af hverju var ekki orðið við því?