157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir þessa spurningu sem er ákaflega góð. Þetta er raunar spurning sem ég veit að mínum ágætu fyrrum kollegum í Háskóla Íslands hefur legið á hjarta um mjög langt skeið. Ég hygg að skýringanna sé fyrst og fremst að leita í því að þetta er stórt skref að taka og eins og kom fram í máli hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar þegar hann var að tala um innviðagjald, þá þyrfti þetta að gerast í einhverjum skrefum og með einhverjum fyrirvara en það hlýtur að vera markmiðið að þessi gjöld standi undir kostnaði.