breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir ljómandi góða spurningu. Nú er það þannig að þetta heyrir ekki undir málefnasvið fjármálaráðuneytisins og ég mun þess vegna fara varlega í það að fullyrða. En ég veit að þetta er í skoðun, þau sjónarmið sem hv. þingmaður kemur hér fram með, þ.e. sá kostnaðarauki sem felst í staðfestingu gagna og meðferð þeirra frá umsækjendum um skólavist utan Evrópska efnahagssvæðisins er umtalsverður þannig að ég hygg að slík leiðrétting sé í bígerð og ég þori ekki að tjá mig nákvæmlega um hver hún verður.