breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Jú, kannski til þess að ná markmiðum um að slá á væntingar um að verðbólgan sé ekki viðvarandi og það sé hægt að ná henni niður eins og var gert á árunum, ætli það hafi ekki verið 2015, 2016 og 2017 þar sem við viðhéldum 2,5% markmiði í krónutöluhækkun og náðum verðbólgunni niður svo hún varð lág á næstu fimm árum þar á eftir og vextir fóru líka lækkandi. En ég er sammála hæstv. ráðherra, ef það er viðvarandi þá rýrir það auðvitað stofnana. Ef það er hins vegar hluti af einhverri væntingastjórnun, ef það er hluti að koma til móts við fólkið í landinu að taka ekki 4,3 milljarða af því í þessu skyni í þessu háa vaxtaumhverfi — því ríkisstjórnin skilar auðu í að koma til móts við tekjulágt fólk. Eina tillagan sem ég sé í þessu frumvarpi er að viðhalda tillögu frá fyrri ríkisstjórn frá fyrra ári um að framlengja barnabætur með sama hætti og þær voru á árinu 2025, sem þýðir auðvitað rýrnun miðað við hærri vexti og verðbólgu. En það er eina tillagan sem hér kemur fram. (Forseti hringir.) Ég hef ekki séð aðrar, nema fjármálaráðherra lumi enn á þeim í pokahorninu sínu.
Herra forseti. Afsakið að ég skyldi hafa farið fram yfir tímann.
(Forseti (KGH): Forseti gerir það.)