157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og vil kannski svara með því að menn velti fyrir sér; allar tekjur ríkisins, sérstaklega þær sem eru ákvarðaðar sem hlutfall af einhverjum gjaldstofni, hljóta alltaf að breytast með verðlagi og ég held að það sé alveg geysileg bjartsýni að halda að krónutöluuppfærslur í bandormi með fjárlögum hafi einhver veruleg áhrif á verðbólguvæntingar. Það þarf allt önnur tæki þar til. Ég skil hvaðan spurningin er að koma en ég er ekki sammála því. Mér finnst þetta pínulítið skrýtinn leikur vegna þess að allar aðrar tekjur ríkisins hækka með verðlagi eftir því andlag þeirra hækkar.