157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:27]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég er algerlega ósammála því að þetta snúist um jafnaðarmennsku eða ekki og að þið séuð að stuðla að jafnaðarmennsku. Mér þykir það ekki vera skýrt í þessu. Ég bendi á það að samsköttun hjóna byggir á því að heimilisbókhaldið sé sameiginlegt. Það byggir á því að það sé sameiginlegt heimilisbókhald. Þannig að það er einhvers konar undarleg framsetning að segja að þetta nýtist karlmönnum í 80% tilfella þegar samsköttun byggist á því að heimilisbókhaldið sé sameiginlegt. Það er auðvitað alveg út úr kortinu og ég myndi segja að það væri einmitt ákveðin jafnaðarmennska að leyfa því að hanga inni, vera ekki með þessa skattahækkun í gangi. Hvort einstaklingar þurfi einhverja aukahjálp er síðan bara allt annað mál að mínu mati. Ég held að við ættum að styðja við og kannski að gera meira þegar kemur að samsköttun hjóna.

Ég spyr: Hvað finnst hv. þingmanni um það að ábyrgðin sé enn þá jafn mikil milli hjóna? Er þá ábyrgðin 80% karlmanna en 20% kvenna? Nei, þetta meikar ekki sens, þessi röksemdafærsla. Því spyr ég: Styður þingmaðurinn að ábyrgðin á milli hjóna verði afnumin?