157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:30]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur, 3. þm. Norðvest., fyrir að hafa ávarpað hér í ræðu sinni mál sem ég held að sé að verða allmikill skilningur á að hafi verið risastór handvömm og mistök af hálfu þeirra sem héldu á sprotunum á sínum tíma þegar hent var í fyrirvaralausa 2.500 kr. álagningu á hvern einasta farþega skemmtiferðaskipa. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá sáum við kannski ekki hrunið strax enda selja þessi fyrirtæki ferðir sínar tvö til þrjú ár fram í tímann. Nú eru hins vegar skýin byrjuð að hrannast upp. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hún deilir áhyggjum af þessu með mér, hvort það séu ekki óásættanleg viðbrögð, og í raun og veru langt frá því að vera þess eðlis að skipta einhverju verulegu máli í að reyna einhvern veginn að hafa áhrif á afleiðingarnar sem eru að teiknast upp, að lækka tímabundið þetta 2.500 kr. álag, lækka það tímabundið, ef ég er að lesa þessa þykku litlausu bók rétt, um 500 kr. í eitt ár. Skaðinn er nánast skeður. Hefðu ekki verið, að mati hv. þingmanns, einu réttu viðbrögðin að bakka bara út úr þessu? Segja bara: Heyrðu, hér voru gerð mistök, við hins vegar stefnum að þessu og þetta mun koma inn eftir þrjú ár og þá jafnvel í tveimur, þremur þrepum eða eitthvað slíkt. Vissulega er erfitt að eiga við hlutina þegar búið er að eiga sér stað slys. Þá er fyrsta verk, þetta vita allir sem hafa starfað í hjálparsveit, að þegar þú mætir á slysstað þá reynirðu að koma í veg fyrir frekari slys.