157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:32]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Hann spyr hvort við eigum ekki bara að bakka alveg með þetta. Það held ég ekki, það er alveg eðlilegt að þessir farþegar borgi innviðagjald eins og aðrir, þetta er bara spurning um hversu hátt það á að vera. Þessir aðilar sem sérhæfa sig í móttöku skemmtiferðaskipanna hafa sagt líka að þeir séu alveg til í að borga en þeir þurfa þá þennan fyrirsjáanleika, þetta var bara of bratt. Auðvitað vilja þeir leggja sitt af mörkum eins og aðrir þegar við erum að tala um að byggja upp innviði, þannig að eins og ég nefndi í ræðu minni áðan þá er ég ekki að leggja til að við hættum við innviðagjaldið. Ég vil skoða það hvort við eigum að reyna að lækka það eitthvað en, eins og hæstv. fjármálaráðherra fór vel yfir áðan, svigrúmið er ekkert allt of mikið. Ég held að það sé hárrétt að þau sem settu á innviðagjaldið, síðasta ríkisstjórn, hafi ekki áttað sig á afleiðingunum, kannski af því að það var boðað til kosninga með einhverju hraði og fólk gat einhvern veginn ekki kafað nógu vel ofan í þetta, en ég held að fólk átti sig á því núna annars væri ekki verið að lækka þetta. Ég meina, þetta er 500 kall, það er 20% lækkun og það munar um minna og auðvitað mun það skipta máli en ég held að margir hafi haft væntingar um að þetta færi enn neðar. Ég er í þeim hópi að ég hefði viljað sjá þetta fara aðeins neðar og ég nefndi það í minni ræðu og ég vil ræða það í nefndinni hvort það sé svigrúm til þess að fara aðeins neðar.

En þingmaðurinn spurði hvort við ættum ekki að hætta alveg við. Ég segi nei, ég vil halda innviðagjaldinu inni og ég held að þessir aðilar séu alveg tilbúnir til að leggja sitt af mörkum. Þetta var bara of bratt, gjaldið var of hátt og þess vegna myndi ég vilja skoða það núna að reyna að lækka það. En varðandi það sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á, afnám tollfrelsis hringsiglinga. Við áttum okkur ekki alveg á hvað hefur haft mest áhrif, það varð algert hrun í bókunum, var það vegna innviðagjaldsins eða vegna afnáms tollfrelsis hringsiglinga? Það er eitthvað sem mér finnst að við þurfum að fá betri greiningar á.