breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil þó taka það sérstaklega fram og hygg að það verði skoðað í talgervlinum eða á vídeói að ég lagði ekki til að þetta yrði lagt niður endanlega heldur að þetta yrði kallað til baka og tilkynnt að þetta myndi koma á eftir þrjú ár vegna þess sem ég nefndi hér í aðdraganda spurningar minnar að þessi fyrirtæki væru að selja ferðir tvö til þrjú ár fram í tímann. Einnig vil ég nefna það að mér er líka kunnugt um vilja þessara félaga til að taka þátt með því að greiða hér einhver innviðagjöld en, svo það sé sagt og undirbyggt í spurningunni sem ég lagði fram áðan, samkvæmt því sem fram kemur frá aðilum sem eru í þessum rekstri þá eru þessi viðbrögð ekki í neinu samræmi við þær væntingar sem fyrirtækin höfðu eftir samtöl við stjórnvöld. Þeir skynjuðu mun meiri vilja en raungerist. Það raungerist aðeins 500 kr. lækkun í eitt ár af 2.500 kr. Getur hv. þingmaður verið sammála mér um það að við verðum bara að horfast í augu við það að hér þarf að taka stærra skref?